Nýleg ummæli um flugauglýsingar.
Nýlegar rannsóknir benda til þess að auglýsingar á matarborðum flugsæta séu góð fjárfesting. 79% af flugfarþegum í amerísku innanlandsflugi muna eftir auglýsingunum og um 26% hafa jákvæða svörun jafnvel kaup á vöru eða þjónustu sem auglýst var.
Bifreiðar og þjónusta komu best út úr þessum könnunum en bifreiðaagulýsingar ná 83% eftirtekt og þjónusta fær um 86% jákvæða svörun. Sjónvarpsauglýsingar um borð í vélunum virðast hins vegar skila verri árangri en 12,2% muna eftir auglýsingum í sjónvarpinu og um 8% sýna jákvæða svörun.Flugfarþegar eru áhugaverður markhópur. Farþegar í innanlandsflugi eru þverskurður af þjóðinni þó svo að ætla megi að þar sé stórt hlutfall opinberra starfsmanna og viðskiptamanna, sérstaklega á stærri áfangastaði. Hópurinn hlýtur að vera áhugaverður fyrir margar sakir. Flugfarþegar innanlands nýta ferðina oftar en ekki til að versla auk þess sem þeir nýta sér margskonar aðra þjónustu á áfangastað s.s. bílaleigubíla, veitingastaði, hótel, osfrv.
Fólk úr viðskiptalífinu og starfsmenn opinberra stofnanna er yfirleitt vel menntað og með góðar tekjur og ætti því að vera vænlegur kostur fyrir auglýsendur.Til þess að þessi auglýsingakostur verði að áhugaverðum kosti verður verðið hinsvegar að endurspegla fjölda farþega og hins vegar eftirtektar- og kauphneigðartölur.

